Háskólinn á Akureyri hefur sett á laggirnar Rannsóknarmiðstöð um málefni innflytjenda. Miðstöðin á að safna og greina gögn til þess að styðja opinbera stefnumótun um innflytjendur.Innflytjendum á Íslandi hefur fjölgað hratt á Íslandi á síðustu áratugum. Þeir eru nú 18,9% íbúa landsins samanborið við 7,4% árið 2012. Annarrar kynslóðar innflytjendum hefur líka fjölgað.Mikilvægt er að byrja að safna og greina gögn til þess að styðja við inngildingu innflytjenda í samfélagið, segir Markus Meckl, sem leiðir verkefnið í Háskólanum á Akureyri. Það séu ýmis aðkallandi verkefni og markmið miðstöðvarinnar sé að þróa lausnir. Dæmi frá Þýskalandi sýni að ekki megi hundsa innflytjendur: „Eins og við höfum séð í Þýskalandi er ekki gáfulegt að hundsa innflytjendur heldur þurfi að aðstoða. Þess vegna er m