Rodney Cloete, þingmaður í namibísku stjórnarandstöðunni, er ósammála Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, um spillingu þar í landi.Þetta kemur fram í umfjöllun stærsta dagblaðs Namibíu, The Namibian, frá því í dag.„Það er spilling í Namibíu – ekki á Íslandi,“ sagði Daði Már við danska blaðið Berlingske í nýlegri umfjöllun þess um íslenskan sjávarútveg, þar á meðal Samherja.Meintar mútugreiðslur Samherja til namibískra ráðamanna segja, að mati Daða, meira um aðstæður í Namibíu en á Íslandi. Meintar mútugreiðslur eru taldar nema frá 1,5 milljörðum til þriggja milljarða króna.Cloete segir hlutverk erlendra fyrirtækja í sjávarútvegi hunsað með því að segja að spillingin sé aðeins Namibíumanna. Ekki sé rétt að einskorða ábyrgðina við aðeins annað landið.„Ég bið hæstvirtan ráð