Ming Ting Mancel var í dag ákærð fyrir manndráp á þrítugri dóttur sinni í samverknaði við eiginmann sinn. Hún er ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti eiginmanns síns, Emerics Mancel. Eiginmaður hennar og dóttir létust á Edition-hóteli 14. júní 2025.Ming Ting Mancel var handtekin á Edition-hótelinu í júní 2025 eftir að starfsmaður hótelsins kom að óhugnalegum aðstæðum á herbergi fjölskyldunnar.Málið er án fordæma og rannsókn lögreglu hefur teygt sig til fjölda landa. Mörgum spurningum hefur verið ósvarað um fjölskylduna til þessa, meðal annars hvaða fólk þetta var sem endaði lífið með þessum hætti, á einu dýrasta hóteli Reykjavíkur, sama dag og þau áttu pantað far aftur heim til Írlands, þar sem fjölskyldan hafði búið um nokkurra ára skeið.Ítarlega er fjallað um málið í Sögum úr raunveruleika