Ísfirðingurinn Þormóður Eiríksson er einn virkasti tónlistarframleiðandi Íslands og hefur unnið smelli á borð við B.O.B.A. og fjölda annarra. Þrátt fyrir rúman áratug í bransanum þá sendi hann út sína fyrstu sólóplötu þann 20. mars.Platan heitir Meira og er ekki hefðbundin framleiðendaplata þar sem stjörnum er pakkað saman í slagara eftir slagara eins og á safnplötu. Þormóður vildi gera persónulegt, myrkt hljóðheimsverkefni með skýrri hugmynd sem væri hans og framleidd af honum sjálfum og þannig var Meira unnin í leyni í þrjú til fjögur ár.Hann lýsir plötunni sem spegli af venjulegri viku í lífi sínu þar sem hann tekst á við tilfinningar, tónlist og pælingar daglegs lífs og gefur þeim rými.Þormóður mætti til Atla Más Steinarssonar, ræddi ferilinn og plötu vikunnar Meira.