Rekstur A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæður um rúmlega 5 milljarða króna á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársreikningi borgarinnar sem var lagður fyrir borgarstjórn í morgun.Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að helsta skýring neikvæðrar niðurstöðu af A-hluta sé mikil hækkun lífeyrisskuldbindinga „auk þess sem há verðbólga og óvissa á atvinnumarkaði leiðir til hægari vaxtar útsvarsgreiðslna“.Rekstur málaflokka og þjónustu hafi verið í jafnvægi og í takt við áætlanir.Þegar A- og B-hluti borgarinnar eru skoðaðir saman var reksturinn árið 2025 jákvæður um átta milljarða króna, sem er um 2,7 milljörðum lakari niðurstaða en 2024.Fulltrúar meirihlutans sögðu í bókun að niðurstaðan sýndi „stöðugan og traustan rekstur þrátt fyrir utanaðkomandi áföll, svo sem verulega hækkun lífeyrisskuld