Félagasamtökin Rótin hafa kært ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Sjúkratryggingar synjuðu aðgangi að hluta upplýsinga í samningi þeirra við SÁÁ. Kristínu I. Pálsdóttur, framkvæmdastýru Rótarinnar, finnst ekki standast að hagsmunir SÁÁ séu teknir fram yfir upplýsingarétt almennings.„Ástæðan fyrir því að við viljum sjá þessa samninga er að við viljum vita hvernig kerfi þetta er sem við erum með. Hvernig er verið að nýta fjármuni í þessu kerfi, hvað er verið að semja um og slíkt,“ sagði hún í útvarpsþættinum Sögur úr raunveruleikanum á Rás 1 á dögunum.Rótin beitir sér fyrir hagsmunum kvenna og kvára með fíknivanda og hefur um árabil gagnrýnt margt við SÁÁ – meðal annars meðferðir og þær hugmyndir sem starfsemin er byggð á. Þá hefur Rótin hvatt stjórnvöld