Norska menningarmálaráðuneytið hefur farið þess á leit við flugmálayfirvöld í landinu að drónar og flug þeirra verði bannað nærri stafkirkjum landsins. Alls standa enn 28 sögufrægar stafkirkjur víðs vegar um landið, sumar allt að 900 ára gamlar. Þær eru því meðal elstu timburbygginga heims. Bannið myndi að óbreyttu gilda um 27 af 28 stafkirkjum Noregs og hugmyndin er að drónaflug verði bannað í um 100 metra radíus í kringum kirkjubyggingarnar. Í frétt norska ríkisútvarpsins um málið fullyrðir kirkjuvörður stafkirkjunnar í Lom, að drónum hafi verið flogið á stafkirkjur víða um Noreg. Blessunarlega hafi enn ekki illa farið, en þar sem slík flygildi séu hlaðin liþíumrafhlöðum geti hæglega skapast eldhætta. Eðli málsins samkvæmt sé því stórkostleg hætta búin þessum helgustu véum Norðmanna. „Dr