Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sigur heiðninnar og list hirðskáldanna

Haukur Þorgeirsson skrifar:Hver var fyrsti íslenski listamaðurinn sem sló í gegn í útlöndum? Kannski var það Glúmur Geirason sem var sonur landnámsmanns og fæddur snemma á tíundu öld. Glúmur varð hirðskáld í Noregi og orti bæði fyrir Eirík blóðöx og fyrir son hans, Harald gráfeld. Það virðist hratt hafa orðið siður meðal norskra höfðingja að halda íslensk hirðskáld. Á tíundu öld má nefna mörg nöfn – Kormákur Ögmundarson, Tindur Hallkelsson og Egill Skallagrímsson eru þar á meðal. En í dag er það vinur Egils, Einar skálaglamm, sem ég ætla að einbeita mér að og kvæði hans Velleklu. > Hugstóran bið eg heyra— heyr, jarl, Kvasis dreyra —foldar vörð á fyrðafjarðleggjar brim dreggjar. Dróttkvæðin eru varðveitt í litlum brotum eins og þessu sem ég las nú. Það er úr Snorra-Eddu og þar notað til a
Sigur heiðninnar og list hirðskáldanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta