Nýjasta útgáfa Andervels er dúett, lagið heitir Báran og byggist á ljóði eftir Jóhann Sigurjónsson.„Í ferðalagi mínu við að læra íslensku hefur mér fundist hjálplegt að lesa ljóð,“ segir hann. Tónlist hans bjóði upp á ferska og fjölþjóðlega nálgun á þjóðlaga- og indí-tónlist. Hann sæki innblástur í íslenska og mexíkóska ljóðlist, fólksflutninga, minningar og samruna tveggja heimalanda – þar sem hlýja Mexíkó mætir kyrrð og vindasömu landslagi Íslands.Andervel gefur út breiðskífuna Ironclad and Palm Trees 1. maí.Hlustaðu á lagið í spilaranum hér að ofan.