Allt bendir til þess að gervigreind muni hafa áhrif á flest störf á íslenskum vinnumarkaði samkvæmt nýrri skýrslu Almannaróms. Talið er að störf skrifstofufólks verði helst undir auk stjórnendastarfa. Hins vegar er ekki talið að óvæntar sviptingar komi upp vegna þessa.