Franskir saksóknarar hafa krafist réttarhalda yfir fjöldamorðingjanum Francis Heaulme vegna áður óupplýsts morðs sem framið var 1989. Morðinginn hefur setið í fangelsi síðan 1992.Heaulme er 67 ára og var sakfelldur fyrir ellefu morð. Sakamáladómstóll vísaði árið 1989 frá morðmáli á hendur honum þar sem hann var ákærður fyrir að hafa myrt bóndann Jean-Joseph Clement með ítrekuðum höfuðhöggum með grjóti.Deild innan lögreglu sem rannsakar óupplýst mál þykir allt benda til sektar Heaulme og saksóknarar segja sönnunargögn geta tryggt sakfellingu núna. Lögmaður dóttur Clement segir þetta mikilvægt skref fyrir hana sem hefur um árabil reynt að sanna sekt Heaulmes og draga hann fyrir dóm. HEAULME ALRÆMDASTUR FYRIR AÐ MYRÐA TVÖ BÖRN Lögmaðurinn kvaðst jafnframt vona að Heaulme hefði heilsu til a