„Ég hef mikla þörf fyrir það að segja sögur og ætlaði alltaf að verða rithöfundur. Ég elska bókmenntir og þegar ég var tíu ára fékk ég verðlaun frá forseta Íslands því ég var búin að lesa allt bókasafnið,“ segir listakonan Saga Sig en hún er viðmælandi í fyrsta þætti af Litlu hlutunum með Kára Sverris.