Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, setur skýr skilyrði fyrir mögulegri aðild Íslands að Evrópusambandinu: Full og óafturkræf yfirráð yfir auðlindum. Samhliða hafnar hún harðlega þeirri stefnu að verja tugum milljarða í loftslagsaðgerðir og gagnrýnir alþjóðleg kerfi sem hún telur ósanngjörn gagnvart Íslandi.