Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætlar ekki að beita sér sérstaklega fyrir því að spurningu í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst verði breytt. Það sé verkefni þings og hún treysti þeim. Kristrún var gestur utanríkismálanefndar og ræddi þar Evrópusambandið og mögulegar aðildarviðræður Íslendinga.