Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kona í efsta sæti á 33 listum af 182

Konur voru rúmlega 50 prósent kjörinna fulltrúa í síðustu sveitarstjórnarkosningum, segir Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Í alþjóðlegu samhengi sé það mjög sérstakt og árangurinn glæsilegur vegna þess að lögbundinn kvóta þurfi almennt til þess að ná álíka hlutfalli.Rætt var við Evu Marín á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun.Hátt hlutfall kvenna í sveitarstjórnum virðist þó ekki endurspeglast í vali á oddvitum.„Miðað við mína talningu, og ég ætla ekki alveg að fullyrða, það gæti skeikað einum eða tveimur, þá sýnist mér að af þeim 182 listum séu 33 sem setji konu í oddasætið. Það eru töluvert mörg sveitarfélög þar sem eru bara karlmenn í fyrsta sætinu. Þetta er ekki nýtt fyrirbæri. Það hefur yfirleitt verið þannig að listar hafa verið settir þannig að kar
Kona í efsta sæti á 33 listum af 182

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta