Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Heimsókn Karls III til Bandaríkjanna stendur óhögguð þrátt fyrir árásina

Dagskrá ríkisheimsóknar Englandskonungs til Bandaríkjanna stendur óhögguð þrátt fyrir að skotárás hafi verið beint gegn Bandaríkjaforseta og ráðherrum í ríkisstjórn hans, á hátíðarkvöldverði með blaðamönnum í fyrrakvöld.Donald Trump sagði í viðtali í fréttaskýringaþættinum 60 mínútum í gærkvöld, að Hvíta húsið væri mjög öruggt og að Karl III yrði öruggur þar.Konungurinn lendir í Washington um klukkan 15 síðdegis, um svipað leyti og Cole Tomas Allen, grunaður árásarmaður, kemur fyrir dómara í borginni og mál hans verður þingfest.Karl og Kamilla drottning verja nokkrum dögum vestra og heimsækja meðal annars Ground Zero, minningarreit um árásirnar 11. september 2001.Vonir breskra stjórnvalda eru að eitthvað takist að lappa upp á samband Bretlands og Bandaríkjanna. Brestir hafa komið í „sérsta
Heimsókn Karls III til Bandaríkjanna stendur óhögguð þrátt fyrir árásina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta