Þrír táningar á aldrinum 16-17 ára hafa verið ákærðir fyrir að skipuleggja sprengjuárás á ótilgreindum stað í Ósló í Noregi í fyrrahaust. Saksóknari í Vestur-Noregi gefur út ákæruna. Piltarnir eru allir frá Rogalandi.Fjallað er um ákæruna í frétt norska ríkisútvarpsins, NRK. Þar segir að piltunum sé gefið að sök að hafa lagt á ráðin um að varpa handsprengjum eða koma af stað sprengingu í borginni með öðrum hætti. Samkvæmt heimildum NRK tengjast fyrirætlanir þeirra sprengingu í borginni í september í fyrra.Tveir piltanna eru sagðir hafa komist að samkomulagi við þriðja piltinn um að taka við sprengiefni og koma því fyrir í miðborg Óslóar.Lögmaður eins þeirra segir umbjóðanda sinn hafa játað brot sín í yfirheyrslum.Tveir piltanna eru einnig ákærðir fyrir að reyna að ráða fleiri drengi undir