Dai Phat Asian supermarket hefur innkallað Buldak Spicy ramen hot chicken með carbonara-bragði. Of mikið magn af 3-MCPD er í vörunni. 3-MCPD er aðskotaefni sem getur breytt eiginleikum og hollustu matvæla. Varan sem var innkölluð er í umbúðum með geymsluþol til 28. ágúst.Matvælastofnun tilkynnti Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um innköllunina. Fyrirtækið bendir fólki sem hefur keypt vöruna á að neyta hennar ekki heldur farga henni eða skila henni í verslunina þar sem hún var keypt.Umbúðir innkölluðu vörunnar.Dai Phat Asian supermarket