Stjórnendur og starfsmenn íslenskra fyrirtækja í sjávarútvegi sem sóttu sjávarútvegssýninguna í Barcelona í síðustu viku urðu varir við talsverðan áhuga samstarfsaðila sinna í Evrópu á mögulegum aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið.Um þúsund manns frá íslenskum fyrirtækjum sóttu þessa sýningu og kaupstefnu; eina þá stærstu sem haldin er í Evrópu á hverju ári. Þeirra á meðal var Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, sem ræddi þessi mál í Morgunvaktinni á Rás eitt í morgun.„Brim er skráð á markað, og þess vegna höfum við verið að fá öðruvísi spurningar á síðustu vikum en áður; við sjáum að það er verið að skoða félagið betur en áður af fjárfestum,“ sagði Guðmundur á Morgunvaktinni í morgun.„Svo sjáum við líka að Norðmenn hafa mikinn áhuga á því sem við erum að gera; við fengum miki