Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Varað við salmonellu í nautahakki í þriðja skipti á tveimur vikum

Matvælastofnun varar við neyslu á nautahakki, merktu Krónunni, úr tveimur framleiðslulotum. Grunur leikur á að salmonella sé í kjötinu. Viðvörunin á við um framleiðslulotur með lotunúmerin 7014-26110 og 7017-26110.Þetta er þriðja viðvörunin á hálfum mánuði vegna gruns um salmonellu í nautakjöti, frá tveimur framleiðendum.Að þessu sinni er viðvörunin vegna nautahakks frá Stjörnugrís í umbúðum sem eru merktar Krónunni. Matvælastofnun hvetur neytendur til að neyta hakksins ekki heldur farga því eða skila í búðina þar sem það var keypt.Fyrr í þessum mánuði voru gefnar út viðvaranir vegna tveggja nautaafurða frá Ferskum kjötvörum. Önnur var vegna nautahakks sem er merkt Bónus (með lotunúmerin 105-6-106-04 og 105-6-107-01 og síðasta notkunardag 27. apríl) en hin vegna Smash Style-hamborgara frá
Varað við salmonellu í nautahakki í þriðja skipti á tveimur vikum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta