Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hvassviðri eða stormur í kvöld og nótt

Útlit er fyrir að það rigni og blási á fólk og dýr um land allt framan af degi í dag en norðan- og austan til getur fólk þó átt von á þurru eftir hádegi þegar styttir þar upp að mestu.Í kvöld og nótt hvessir á norðvestanverðu landinu og þá er útlit fyrir sunnan hvassviðri eða storm í vindstrengjum. Í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands segir að varasamt geti verið að aka ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.Næstu daga verður dálítið vindasamt og kólnar þegar líður á vikuna. Í dag verður þó allt að fjórtán stiga hiti, hlýjast á norðaustanverðu landinu.Veðurspá dagsins:Sunnan átta til fimmtán metrar á sekúndu og rigning, en styttir að mestu upp síðdegis á Norðaustur- og Austurlandi. Hvessir um tíma í kvöld. Suðvestlægari á morgun og rigning á köflum en þurrt og bjart veður um l
Hvassviðri eða stormur í kvöld og nótt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta