Hætt er við að vindur þvert á vegi fari í allt að 35 metra á sekúndu í vindstrengjum við fjöll á norðvestanverðu landinu seint í kvöld og í nótt. Þá gengur í hvassa sunnanátt.Veðurfræðingur Vegagerðarinnar vekur athygli á veðurhamnum og nefnir sem dæmi að vindstrengir geti orðið öflugir á norðanverðu Snæfellsnesi, Steingrímsfjarðarheiði, Vatnsskarði og Öxnadalsheiði.Það dregur úr vindi snemma í fyrramálið.Vindstrengurinn verður þvert á vegi.RÚV