Lára Kristín Pedersen segir matarfíkn hafa læðst aftan að henni á unglingsárum og hún fljótlega farið að hegða sér skaðlega. Hún gaf út bók um matarfíknina fyrir nokkrum árum sem er búið að þýða á ensku. Lára lagði skóna á hilluna í fyrra eftir farsælan knattspyrnuferil, segir auðvelt að missa einlægnina í boltanum og starfar í dag með heimilislausum.