Hér er óþægilegur sannleikur fyrir stjórnmálamenn í París, Berlín og víðar: Það er að miklu leyti Evrópu sjálfri um að kenna hversu háð hún er Ameríku hf. Áratuga ofregluvæðing hagkerfisins hefur dregið úr samkeppnishæfni og gert fyrirtæki ófær um að keppa við þau bandarísku, sem þegnarnir bjóða svo velkomin.