Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist ekki hafa verið hræddur þegar vopnaður árásarmaður skaut úr byssu á kvöldverði samtaka blaðamanna Hvíta hússins í Washington fyrrinótt. Þetta sagði Bandaríkjaforseti í viðtali í fréttaskýringarþættinum 60 minutes í gærkvöld. Þáttastjórnandinn Norah O'Donnell spurði Trump út atburði kvöldsins og hvort hann hefði verið skotmark. Trump sagðist ekki vita hvort hann hefði verið skotmark árásarmannsins en maðurinn væri líklega mjög veikur. VILDI VITA HVAÐ VAR Í GANGI Bandaríkjaforseti var spurður út í það af hverju það tók svo langan tíma að koma honum af sviðinu þar sem hann sat miðað við JD Vance varaforseta sem var dreginn burt mun fyrr en Trump. Trump sagði að hann hefði ekki gert lífvörðum sínum auðvelt fyrir og ekki hlýtt þeim strax þegar hann var