Maður virðir fyrir sér húsarústir eftir árásir rússneska hersins á Odesu 24. apríl 2026. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / IGOR MASLOVAð minnsta kosti 10 eru særðir eftir drónaárásir rússneska hersins á úkraínsku hafnarborgina Odesu í nótt. Fyrstu sprengingarnar áttu sér stað um klukkan 01:30 að staðartíma, samkvæmt úkraínska fréttamiðlinum Kyiv Independent. Haft er eftir héraðsstjóra Odesu, Oleh Kiper, að árásirnar hefðu beinst að fjölbýlishúsi og hóteli í borginni.Rússneski herinn hefur ítrekað gert árásir á borgina síðan innrásin hófst í Úkraínu fyrir rúmum fjórum árum.