Um 30 þúsund manns komu saman á dómkirkjutorginu í miðborg Vilniusar, höfuðborgar Litáen, á laugardaginn til stuðnings tjáningarfrelsinu og til að mótmæla fyrirhuguðum lagabreytingum ríkisstjórnarinnar á lögum um LRT, ríkisútvarp og sjónvarp Litáen. LRT greinir frá mótmælunum í frétt á vef sínum.Frumvarp um breytingar á lögum um LRT hefur verið til umræðu í litáíska þinginu Seimas undanfarið. Fyrirhugaðar lagabreytingar fela meðal annars í sér að stofnuð verði eftirlitsnefnd með LRT, fjölgað verði í útvarpsráði LRT um fjóra einstaklinga og útvarpsráðið fær meira svigrúm til að segja upp forstjóra en áður. Þá er gert ráð fyrir að LRT fái einungis opinbert fé til að sinna þjónustu sem ekki er veitt af öðrum fjölmiðlum og samkeppnisaðilum á fjölmiðlamarkaði.Frumvarpið hefur verið harðlega gag