Flóttamenn frá Súdan bíða eftir því að sækja vatn í Farchana-flóttamannabúðunum í Austur-Tjad í apríl 2024. Mikill vatnsskortur er á þessu svæði, sem bitnar bæði á íbúum þess og flóttamönnum sem flúið hafa stríðið í Súdan yfir til Tjad. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / StringerAð minnsta kosti 42 voru drepnir í átökum milli þjóðarbrota í Austur-Tjad í gær. Fréttaveitan AFP hefur eftir ónafngreindum embættismanni í ríkisstjórn landsins að átök hefðu brotist út milli hópa fólks í Wadi Fira-héraðinu vegna vatnsbrunns.Átök hafa ítrekað brotist út milli bænda og hirðingja í Austur-Tjad. Spennan hefur aukist á þessu svæði eftir að mikill fjöldi flóttamanna flúði stríðsátök í Súdan yfir til Tjad.Yfir 1.000 manns hafa verið drepnir og um 2.000 hafa slasast í átökum um ræktað land og beitilönd