Utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, fór til Rússlands í gær til fundar við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Þeir funda í Pétursborg í dag, mánudag. Araghchi hefur einnig fundað í Óman á milli ferða til að hitta diplómata í Pakistan undanfarið.Hvorki hefur gengið né rekið í samningaviðræðum milli Írana og Bandaríkjamanna síðustu daga. Til stóð að sérlegur erindreki Bandaríkjanna Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasonur Bandaríkjaforseta, færu til fundar við samninganefnd Írana í Islamabad, en Bandaríkjaforseti aflýsti ferðinni á laugardaginn.Vopnahlé milli Bandaríkjanna og Íran hefur haldist engu að síður, en efnahagslegar afleiðingar stríðsátakanna eru farnar að hafa áhrif á heimsvísu. Skoðanakannanir í Bandaríkjunum sýna að stríðsátökin njóta ekki stuðnings meðal Bandaríkjamanna e