Jarðskjálftar eru tíðir í Japan. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / JIJI PRESSSkjálfti að stærðinni 6,1 varð á japönsku eyjunni Hokkaido klukkan hálf tíu í kvöld eða hálf sex að morgni í Japan. Ekki hafa borist fregnir af því hvort einhver hafi slasast.Skjálftinn varð 18 kílómetra vestur af bænum Sarabetsu á Hokkaido-eyju á um 80 kílómetra dýpi. Ekki hefur verið gefin út flóðbylgjuviðvörun vegna skjálftans.Fréttin verður uppfærð.