Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Chernobyl var risastór ríkisstyrkt lygi“

Ljósmyndari sem hefur myndað Chernobyl-kjarnorkuverið í 28 ár segir fólk hafa þurft að reiða sig á ólöglegar vestrænar útvarpsútsendingar til að fá réttar upplýsingar eftir kjarnorkuslysið í Chernobyl-kjarnorkuverinu. Hann segir slysið stóra ríkisstyrkta lygi. 40 ár eru síðan kjarnaofn í verinu sprakk og gríðarlegt magn geislavirkra efna barst út í andrúmsloftið. „ALLT VAR HULIÐ LEYNDARHJÚP“ Efrem Lukatsky er ljósmyndari fyrir The Associated Press. Hann hefur fest afleiðingar kjarnorkuslyssins í Chernobyl á filmu nánast frá upphafi og oft farið inn á bannsvæði sem var sett upp eftir slysið.Rétt eftir miðnætti, aðfaranótt 26. apríl 1986 sprakk kjarnaofn fjögur í kjarnorkuverinu. Mikill eldur braust út. Lukatsky bjó í tveggja tíma fjarlægð frá slysinu og sá afleiðingarnar greinilega, meða
„Chernobyl var risastór ríkisstyrkt lygi“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta