Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Svartþrastarmóðir sinnir ungviðinu í beinni

Svartþröstur hefur gert sér hreiður á lítilli hillu ofan við bergfléttu við hús í Mosfellsbæ.Magnús Guðmundsson, fuglavinur og íbúi hússins, segir hreiðrið hafa uppgötvast 11. apríl og síðan þá hafi svartþrastarmóðirin haft í nógu að snúast. Hún hafi verpt fjórum eggjum sem nú hafa klakist út.„Hún bíður með að leggjast á þangað til hún er komin með öll eggin sem hún ætlar að verpa, þá klekjast þau út samtímis. Ungarnir ná fullri stærð á hálfum mánuði.“Magnús segir svartþrastarmóðurina skreppa reglulega frá hreiðrinu til að ná í orma, aðallega ánamaðka. Karlfuglinn hjálpi aðeins til en í meginatriðum sé það kvenfuglinn sem liggi á og mati ungana.Fyrir sjö árum verpti svartþröstur á bergfléttu hjá húsi Magnúsar og ungaði út þremur fuglum. Árið eftir setti Magnús upp hillu til að auðvelda fug
Svartþrastarmóðir sinnir ungviðinu í beinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta