Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mikil ánægja með opnun nýrrar slökkviliðsstöðvar á Laugarvatni

Ný slökkviliðsstöð hefur verið opnuð á Laugarvatni og er mikil ánægja hjá slökkviliðsmönnum og heimafólki með nýju stöðina. Þrettán slökkviliðsmenn eru skráðir í slökkvilið staðarins en starfsemin er hluti af Brunavörnum Árnessýslu.Nýja slökkviliðsstöðin var formlega vígð og tekin í notkun í vikunni en hún er staðsett rétt fyrir utan þorpið, rétt við Menntaskólann að Laugarvatni. Í tilefni tímamótanna buðu stjórn, stjórnendur og slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu íbúum og gestum að skoða stöðina.„Þetta bara gjörbreytir allri aðstöðu fyrir slökkviliðsmennina okkar og vonandi koma bara fleiri inn í þetta og þetta eflir starfið og eykur viðbragðið. Til hamingju öll með þennan áfanga og svo eru áfangar, sem verða á næstu misserum. Það er verið að byggja stöð á Flúðum og það er farið að huga
Mikil ánægja með opnun nýrrar slökkviliðsstöðvar á Laugarvatni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta