Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um meðvitundarlausan einstakling við Háafoss í Þjórsárdal á sjöunda tímanum í kvöld. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að viðbragðsaðilar hafi verið boðaðir á fyrsta forgangi, en þegar að var komið var einstaklingurinn látinn. Að sögn lögreglu verða frekari upplýsingar um málið ekki veittar að sinni. Umfangsmikil leit fór fram að ferðamanni Lesa meira