Allt tiltækt viðbragðslið var kallað út á hæsta forgangi eftir að ferðamenn sáu til manns í neyð niðri í gilinu við Háafoss í Þjórsárdal á Suðurlandi. Maðurinn er kominn um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar og verið er að flytja hann, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Engar upplýsingar fást um líðan hans.Útkallið var á hæsta forgangi. Björgunarsveitir og straumvatnsbjörgunarsveitarhópar frá höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út. LEITAÐ AÐ FERÐAMANNI Á SVÆÐINU Á þriðjudag óskaði lögreglan á Suðurlandi eftir aðstoð björgunarsveita og Landhelgisgæslu við leit að erlendum ferðamanni sem skilaði sér ekki á gististað. Leitað var í grennd við Háafoss í Þjórsárdal þar sem síðast sást til bíls mannsins. Leitinni var síðan frestað fram yfir helgi.Lögreglan á Suðurlandi