Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Plokkurum blöskraði magn af nikótínpúðum sem komu í pokana þeirra

Það er víða kominn tími á vorhreingerningu, og margir létu hendur standa fram úr ermum í dag, á Stóra plokkdeginum. Plokkurum blöskraði magn nikótínpúða og rafretta.Íbúar í Mosfellsdal riðu á vaðið í gær með kápu- og frakkagöngu til að minna á Plokkdaginn. Íbúar í Vesturbænum plokkuðu sitt nærumhverfi í allan dag.Plokkdagurinn var formlega settur í Garðabænum, þar sem fjölmenni var mætt til að plokka. Þeirra á meðal voru Björn Skúlason, forsetamaki, og Jón Karl Ólafsson, sem var mættur með alla fjölskylduna að plokka.Stóri plokkdagurinn er fyrir löngu orðinn fastur liður í vorinu og hefur verið haldinn árlega síðan 2018.
Plokkurum blöskraði magn af nikótínpúðum sem komu í pokana þeirra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta