Allt tiltækt viðbragðslið hefur verið kallað til vegna manns í neyð niðri í gilinu við Háafoss í Þjórsárdal á Suðurlandi.Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við fréttastofu.Hann segir útkallið á hæsta forgangi og að bjargir séu á leiðinni á staðinn, þar á meðal straumvatnsbjörgunarsveitarhópar frá höfuðborgarsvæðinu og björgunarsveitir.Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir að þyrla gæslunnar sé á leið að Háafossi.Lögreglan á Suðurlandi getur ekki gefið frekari upplýsingar að svo stöddu.Fréttin verður uppfærð.