Jíhadistar hafa fellt Sadio Camara, varnarmálaráðherra hershöfðingjastjórnarinnar í Malí. Samkvæmt upplýsingum frá heimildarmönnum ríkisstjórnar Malí lést Camara af völdum bílsprengju sem skilin var eftir fyrir utan heimili hans nálægt höfuðborginni Bamako.Ættingi Camara, sem vildi ekki láta nafns síns getið, sagði í samtali við fjölmiðla að ráðherrann hefði verið drepinn ásamt að minnsta kosti þremur fjölskyldumeðlimum sínum í bílsprengjunni sem jihadistahópurinn kom fyrir.Átökin hófust í gær þegar jihadistar og uppreisnarhópar hófu samhæfðar árásir út um allt Afríkuríkið, þar á meðal á vígi hershöfðingjanna í Kati nálægt höfuðborginni. Camara og aðrir hershöfðingjar innan stjórnarinnar búa í Kati. VÍGAHÓPAR GENGUST VIÐ ÁRÁSUNUM Í GÆR Þegar fyrst spurðist til átakanna lá ekki fyrir hve