Forn steingervingur sem lengi var talinn elsti þekkti kolkrabbi heims reynist nú vera allt önnur skepna.Dýrið, sem ber nafnið Pohlsepia mazonensis og er á stærð við mannshönd, er talið 300 milljón ára gamalt. Það er fjölarma sjávardýr og olli talsverðum styr í náttúrufræðiheiminum þegar það var skilgreint sem kolkrabbi um aldamótin. Það kollvarpaði kenningum um þróun kolkrabba, þar sem Pohlsepia mazonensis er 90 milljón árum eldri en elsti kolkrabbinn sem var þekktur fyrir það.Skepnan bar titilinn elsti kolkrabbi heims samkvæmt Heimsmetabók Guinness en hefur nú verið skilgreind sem svokölluð snekkja – dýr sem er bæði með ytri skel og arma. TENNURNAR KOMU UPP UM KRABBANN Í frétt AP segir að nýjar myndgreiningaraðferðir hafi varpað ljósi á málið. Með því að skoða steingervinginn með öflug