Vopnahlé milli Ísraels og Hezbollah-samtakanna stendur tæpt og hafa fulltrúar beggja hliða sakað hver annan um að brjóta gegn því. Ísraelsher hefur gert loftárásir í suðurhluta Líbanons og gefið út rýmingarskipanir en Hezbollah segist hafa ráðist á ísraelskar hersveitir.Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir aðgerðir Hezbolla grafa undan vopnahléinu og hann hefur heitið áframhaldandi árásum.Hezbollah samtökin hafna hins vegar yfirlýsingum forsætisráðherrans og segja árásir sínar lögmætt svar við endurteknum brotum af hálfu Ísraela og áframhaldandi hernámi í suðurhluta Líbanons. Á ÞRIÐJA ÞÚSUND LÍBANA FALLIÐ Í ÁRÁSUM ÍSRAELS Að sögn líbanskra heilbrigðisyfirvalda hafa yfir 2.500 manns fallið í árásum Ísraels í landinu frá því í byrjun mars. Þrátt fyrir tímabundið vopnahlé ha