Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir Miðflokkinn selja snákaolíu með loforðum sínum um auknar heimgreiðslur til foreldra. Hún segir heimgreiðslur langtum stærra mál en Miðflokkurinn boði, þær muni til lengri tíma skerða tekjur mun meira en sem nemur ávinningi.