Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir nauðsynlegt að vekja athygli á störfum hjúkrunarfræðinga og hversu mikilvæg stéttin er innan heilbrigðiskerfisins. Skilning á störfum þeirra skorti oft meðal almennings. MIKILVÆGT AÐ VARPA LJÓSI Á STÖRF HJÚKRUNARFRÆÐINGA Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sett af stað auglýsingaherferð undir yfirskriftinni Við þurfum öll á hjúkrun að halda. Herferðin varpar ljósi á fjölbreytt störf hjúkrunarfræðinga. Helga Rósa Másdóttir, formaður, segir tímasetninguna enga tilviljun.„Við erum að velta fyrir okkur breytingum á náminu og þá er mikilvægt að sýna bara hvað hjúkrunarfræðingar þurfa að hafa breiðan grunn til að geta sinnt fjölbreyttum störfum, sérstaklega á svona litlu landi eins og Íslandi, þá skiptir máli að við getum nýtt starfskrafta