Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Samfylkingin sækir í sig veðrið á Akureyri

Samfylkingin mælist með mest fylgi allra flokka á Akureyri samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu sem DV greinir frá. Flokkurinn fengi 18,7 prósent atkvæða og þrjá bæjarfulltrúa.Í síðustu sveitarstjórnarkosningum fékk Samfylkingin, sem nú situr í minnihluta bæjarstjórnar, 11,7 prósent atkvæða.Fast á hæla Samfylkingarinnar mælist L-listinn með 17,2 prósent atkvæða. Þar á eftir mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 16,7 prósent. Flokkar Framsóknar og Vinstri grænna mælast hvor um sig með 11,5 prósent. Þar á eftir mælist Miðflokkurinn með 10,6%, Viðreisn með 8,1% og Akureyrarrlistinn með 6,0%.Ef úrslit kosninganna 16. maí yrðu með þessum hætti væri meirihluti bæjarstjórnar fallinn. Hann er skipaður fulltrúum L-Lista, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks.Könnunin var gerð dagana 17. til 24. apríl og voru s
Samfylkingin sækir í sig veðrið á Akureyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta