Sú var tíðin að menn létu sig dreyma og skrifuðu um alræði öreiganna. Það voru viðbrögð við uppgangi auðhyggju og auðvalds í iðnbyltingunni, þegar mikill auður tók að hlaðast upp, í eigu fárra. Upp spruttu hópar ráðríkra auðsmanna og um leið stórir hópar valdalausra öreiga, sem áttu lítið sem ekkert, en skópu þó auðinn með yfirgengilegu striti. Marx, Engels, Lenin...