„Ég grét bara þegar ég sá fyrstu tvo þættina,“ sagði Satu Rämö þegar hún varð spurð um tilfinninguna hvernig það var að sjá fyrstu bókina sem hún skrifaði um Hildi Ragnarsdóttur, lögreglumann á Ísafirði, verða að sjónvarpsþætti. „Fyrst og fremst var ég bara svo þakklát fyrir hvað þetta kom vel út,“ bætti hún við.Satu fluttist til landsins fyrir um 20 árum síðan og starfaði m.a. við ferðamennsku þangað til hún fór að skrifa glæpasögur í covid. Síðan þá hefur hún klárað sjö bækur sem allar hafa selst í bílförmum í Finnlandi en hún er mjög þekkt í heimalandi sínu og einn mest seldi höfundurinn þar.Sjáðu áhugavert viðtal við Satu Rämö í spilaranum hér að ofan.Miðstöðin er nýr þáttur um dægurmenningu á RÚV. Þátturinn er í loftinu öll fimmtudagskvöld.