Árásarmaður, sem hleypti af skotum á kvöldverði samtaka blaðamanna á Hilton-hótelinu í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna í gær, segist hafa viljað skjóta embættismenn í Bandaríkjastjórn. Hann var yfirbugaður og Bandaríkjaforseti var fluttur burt í skyndi eftir að skothvellirnir heyrðust. Forsetinn og aðrir embættismenn eru óhultir. EINKAKENNARI OG STUNDAÐI NÁM VIÐ VIRTAN HÁSKÓLA Fjölmiðlar vestanhafs hafa birt nafn mannsins sem grunaður er um að hafa hleypt af skotum á viðburðinum. Hann heitir Cole Tomas Allen og er 31 árs, frá Torrance í Kaliforníu. Samkvæmt fjölmiðlinum CBS í Bandaríkjunum er hann kennari hjá einkakennaraþjónustu í Torrance. Óljóst er hvort hann sé enn að vinna þar.CBS hefur þetta eftir tveimur lögreglumönnum. Allen stundaði einnig nám við virta háskólann California