Íbúum í suðaustur Noregi brá þegar jarðskjálfti 3,3 að stærð varð í morgun. Íslendingur sem býr í Noregi vaknaði við þungt högg og hélt að um sprengningu væri að ræða.„Þetta var svolítið óvænt, maður býst ekki beint við jarðskjálftum í Noregi eða í Osló og ég vaknaði við þetta, þetta kom bara svona pínu eins og högg, svona eins og það hefði verið sprenging eða eitthvað,“ segir Karitas Mörtudóttir Bjarkardóttir sem var í vesturhluta Oslóborgar þegar skjálftinn reið yfir. Hún segist ekki hafa áttað sig á því í fyrstu að um jarðskjálfta væri að ræða.„Ég vaknaði við þetta og unnusti minn segir: Þetta hlýtur bara að hafa verið stór lest. Hann lýsir því að hafa fundið svona pínu titring áður en að höggið kom. Við erum hérna rétt við lestarstöð þannig að hann gerði bara ráð fyrir að þetta væri ei