Rússneski herinn gerði linnulausar árásir á borgina Dnipro í Úkraínu í gær.AP / Mykola SynelnykovÚkraínski herinn áætlar að Rússar hafi misst yfir 1,3 milljónir hermanna síðan innrásin hófst í Úkraínu.Þá hafa rússneskar hersveitir tapað rúmlega 11.800 skriðdrekum og yfir 24.000 brynvörðum farartækjum, auk fjölda annarra tækja og herbúnaðar, skipa og kafbáta.Úkraínski herinn gefur ekki upp mannfall í eigin röðum. Sjálfstæðar hugveitur líkt og Center for Strategic and International Studies (CSIS) áætla að fimm til sex hundruð þúsund Úkraínumenn hafi verið drepnir frá febrúar 2022 til desember 2025. Þar af hafi 100-140.000 hermenn fallið í átökum við Rússa.