Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sjaldséðir hvolpar jarðúlfa komu í heiminn

Þau tíðindi gerðust í dýragarði í Tékklandi í byrjun mánaðarins að fjórir hvolpar jarðúlfa komu í heiminn. Tegundin er mjög erfið í ræktun utan heimkynna sinna.Jarðúlfur, proteles cristatus, er minnsta tegund hýena og lifir helst í Austur-Afríku. Fullorðin vega dýrin í kringum tíu kíló og lifa einungis á termítum og öðrum litlum skordýrum ólíkt öðrum hýenum sem eru rándýr.Lítið er almennt vitað um atferli jarðúlfa, sem eru helst á ferli á nóttunni. Vegna þess, og sérstaks fæðuvals, hefur reynst erfitt að rækta tegundina utan náttúrulegra heimkynna.Það þykja því töluverð tíðindi að tekist hafi að koma fjórum hvolpum í heiminn í Safari Park-dýragarðinum í Dvur Králove í norðausturhluta Tékklands í byrjun apríl.Það tókst líka 2024 og var þá í fyrsta sinn í þrjátíu ár sem heppnaðist að rækta a
Sjaldséðir hvolpar jarðúlfa komu í heiminn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta