„Það er magnað að sjá árangurinn af þessu og líka að sjá hvað svona lítið framlag hefur skilað sér í miklu,“ segir Sigríður Birna Sigvaldadóttir en stjórn höfuðborgardeildar Rauða krossins valdi hana á dögunum sem einn af sjálfboðaliðum ársins. Frá árinu 2024 hefur Sigríður ásamt fleirum staðið að sérstökum konukvöldum í fangelsinu á Hólmsheiði – sem slegið hafa rækilega í gegn. Markmið verkefnisins er að styðja konurnar sem þar afplána dóma, auka virkni þeirra og styrkja félagsleg tengsl.